19.5.2008 | 14:59
Listahátið til að vekja fólk til umhugsunar
SVP plakötin sem valdið hafa miklum usla undanfarið er listahátíðarverkefni sem er hluti af Listahátíðinni Ferðalag á Austurlandi og er á vegum svissneska listamannsins Christoph Büchel. Þetta staðfestir Þórunn Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Skaftafells, miðstöðvar myndlistar á Austurlandi.
Er Büchel með sýningu í gangi fyrir austan þar sem hann meðal annars hefur smalað svörtum sauðum innan girðingar í Austdal á Seyðisfirði og flaggar þar tveimur svissneskum fánum. Segir Þórunn að listamaðurinn, sem ku vera nokkuð virtur í sínu fagi, hafi viljað vekja fólk til umhugsunar um málefnið.
Guðrún Kristjánsdóttir, kynningafulltrúi Listahátíðar Reykjavíkur segst ekki vita hvað hann sé að gera með gjörninginn í Reykjavík, en að þau skipti sér ekki að því. Sýning hans er á Seyðisfirði eins og hún kemur á Listahátíð.
Veggspjöldin hafa vakið mikinn usla og titring meðal almennings og hafa þau verið tengd við kynþáttahatur gagnvart innflytjendum. Nú kemur í ljós að það var markmið listamannsins að vekja fólk til umhugsunar.
Heimild: Dv.is
Um bloggið
Félag Anti-Rasista
Tenglar
Mínir tenglar
- Félag anti-rasista Tilgangur félagsins er að berjast á móti rasisma á öllum sviðum.
- www.myspace.com/anti_rasistar
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.